Það sem heillar mig mest við ljósmyndun er kyrrðin sem fylgir því að fylgjast með ljósi, skugga og hreyfingu. Ég leitast við að skapa bæði fagurfræði og nálægð, hvort sem myndefnið er náttúra, fólk eða borgarumhverfi. Ljósmyndir sem fanga stemningu, sögur og skemmtileg augnablik segja oft meira en þúsund orð.
Fyrir verkefni og fyrirspurnir, endilega hafðu samband.
Einar Sigurþórsson