Um mig

Ljósmyndin frystir augnablikið, stöðvar tímann og minnir okkur á að staldra við og veita umhverfinu athygli.

Ég ólst upp í Reykjavík og útskrifaðist frá Tækniskólanum árið 2013. Ljósmyndun hefur alla tíð verið stór hluti af lífi mínu og leita ég innblásturs í náttúrunni, formum, litum og skemmtilegum augnablikum.

Það sem heillar mig mest við ljósmyndun er kyrrðin sem fylgir því að fylgjast með ljósi, skugga og hreyfingu. Ég leitast við að skapa bæði fagurfræði og nálægð, hvort sem myndefnið er náttúra, fólk eða borgarumhverfi.

Ljósmyndir sem fanga stemningu, sögur og skemmtileg augnablik segja oft meira en þúsund orð.

Fyrir verkefni og fyrirspurnir, endilega hafðu samband.

Einar Sigurþórsson

error: Myndir eru varðar !!