Verkefni
Verkefni og ljósmyndaseríur sem ég hef unnið að í gegnum árin.
Gerðuberg
Ljósmyndir teknar fyrir Guðrúnu Eddu Einarsdóttur sem hluta af útskriftarverkefni hennar í skóhönnun við University of the Arts London árið 2009. Verkefnið var unnið í samstarfi við félagsstarfið í Gerðubergi og byggði meðal annars á handverkshefðum, þjóðbúningagerð,útsaumi og útskurði, með áherslu á mikilvægi þess að varðveita sögu, menningu og hefðir.
Ljósmyndirnar draga fram hið mannlega og sýna hvernig handverk og arfleifð lifa áfram í fólki og milli kynslóða.
Colo
Ljósmyndir teknar fyrir Hrefnu Lind Einarsdóttur sem hluta af útskriftarverkefni í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands árið 2015.
Í verkefninu voru íslenskar lækningajurtir og náttúra höfð að leiðarljósi í hönnun Colo silkislæðanna. Í gegnum söguna hafa lækningajurtir verið taldar búa yfir kyngimögnuðum krafti.
Ljósmyndirnar fanga þessa vísun, slæðurnar taka á sig form og hreyfingu og endurspegla kraftinn sem býr í íslenskri náttúru.
Matur
Matarljósmyndir eru skemmtilegt viðfangsefni þar sem ég leitast við að fanga liti, form og ekki síst áferð. Ég hef í gegnum tíðina tileinkað mér að vinna með þessi smáatriði í ljósmyndun og tekið að mér að ljósmynda mat fyrir ýmis verkefni.
Gínur
Í gegnum ferðalög hef ég ljósmyndað gínur í verslunargluggum og almenningsrýmum. Verkefnið fangar form, líkamsstöðu og stemningu þar sem mörkin milli manneskju og hlutar verða óljós.
Frosið
Ég hef einnig unnið ljósmyndaseríur sem fanga frosið landslag og umhverfi, þar sem klaki og ís mynda síbreytileg form og áferð. Í þessu samspili náttúrunnar skapast falleg mynstur og form sem er áhugavert að fanga í ljósmyndum.
Sandur
Ég hef meðal annars unnið ljósmyndaseríu sem fanga áferð, form og litbrigði sands víðs vegar um Ísland. Það er áhugavert að fylgjast með hvernig sandurinn mótast sífellt á ný vegna síbreytilegra áhrifa umhverfisins.
